Guðmundur Steingrímsson alþingismaður er formaður og talsmaður Bjartrar framtíðar en Heiða Kristín Helgadóttir er stjórnarformaður og yfir málefnastarfi flokksins.
Albertína Elíasdóttir frá Ísafirði og Bryndís Gunnlaugsdóttir í Grindavík, sem báðar eru forsetar bæjarstjórna í nafni Framsóknarflokks, eru orðaðar við nýtt framboð Besta flokksins og Guðmundar Steingrímssonar, Bjarta framtíð. Þótt hvorug þeirra sé í fjörutíu manna stjórn hins nýja framboðs eru þær báðar sagðar styðja framboðið.
Í það minnsta sjö fyrrverandi trúnaðarmenn úr Framsóknarflokknum eru í stjórn hins nýja framboðs, þar á meðal Einar Skúlason, fyrrverandi varaborgarfulltrúi, og Andrés Pétursson, formaður Evrópusamtakanna.
„Nei, ég hef ekki stutt forystu Framsóknarflokksins á landsvísu lengi. Það er ekkert leyndarmál,“ segir Albertína aðspurð hvort rétt væri að hún samsamaði sig ekki stefnu Framsóknarflokksins. Albertína sagðist styðja Framsóknarfélagið á norðanverðum Vestfjörðum og að hún starfi með því. Hún segir ekki rétt að forsvarsmenn Bjartrar framtíðar hafi talað við hana. „Akkúrat núna er maður bara þreyttur á stjórnmálum. Margir vinir mínir eru í Bjartri framtíð og ég horfi bara jákvætt til þeirra,“ segir Albertína
Athygli vekur að Bryndís Gunnlaugsdóttir var ritari stofnfundar Bjartrar framtíðar en gaf þó ekki kost á sér í stjórn og því kemur nafn hennar ekki fram í fréttatilkynningu Bjartrar framtíðar af stofnfundinum. „Ég er í Framsóknarfélagi Grindavíkur og starfa með því og styð það. Það hefur ekki farið framhjá neinum að ég styð flokkinn ekki á landsvísu,“ sagði Bryndís aðspurð um málið.
Nánar er fjallað um málið í DV í dag en áskrifendur geta lesið greinina í heild með því að smella á meira.
Meira »


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Husky beit smáhund næstum til ólífis í Grafarvogi
Of mikið gert úr lokun bankaútibúa?
„Miklu miklu alvarlegra brot en sérstakur lætur í veðri vaka“
Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn
Sakborningur í Straumsvíkurmálinu í skýjunum eftir dóminn
