„Stærsti fjórflokkurinn sem virðist hafa náð yfirhöndinni, þar á meðal vegna afskipta forystunnar á landsvísu ætti að skammast sína og ég vona að kjósendur muni eftir því í næstu kosningum,“ segir Ásdís Ólafsdóttir, einn af stofnendum Y-listans í Kópavogi.
Ásdís hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hún biður Kópavogsbúa afsökunar af þeirri ástæðu að listinn hafi vikið frá þeirri grunnstefnu að bæjarstjórinn í Kópavogi væri ópólitískur. Eins og DV hefur greint frá í dag verður Ármann Kr. Ólafsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í næsti bæjarstjóri í Kópavogi eftir að sjálfstæðismenn, framsóknarmenn og Listi Kópavogsbúa sammæltust um að mynda nýjan meirihluta.
„Ég hef reynt að berjast á móti þessu innan Y-Listans með kjafti og klóm og lenti í minnihluta,“ segir Ásdís meðal annars og bætir við að þetta sé sorglegt.
Hér er yfirlýsingin í heild sinni:
Afsökunarbeiðni til Kópavogsbúa, vegna myndunar nýs meirihluta í Kópavogi.
Ég undirrituð er í algjörri andstöðu við þennan meirihluta sem búið er að mynda hér í Kópavogi. Í þeim meirihluta er Y-Listi Kópavogsbúa sem ég átti frumkvæði að því að stofna og fékk gott fólk með mér til að hægt væri að bjóða fram. Grundvallaratriði var að reyna að vinna eins vel og við gætum fyrir Kópavogsbúa. Í framhaldi af því voru sett grunngildi sem við öll ætluðum að starfa útfrá. Þar vó þyngst siðbót í stjórnsýslu og að bæjarstjórinn yrði ópóilitískur – faglega ráðinn . Nú hefur það gerst að Y-Listinn hefur tekið stóra U beygju frá sínum grunngildum að því að virðist, undir forystu sjálfstæðismanna með Ármann Kr. Ólafsson oddvita sjálfstæðisflokksins og hans stuðningsmanna. Ég hef reynt að berjast á móti þessu innan Y- Listans með kjafti og klóm og lenti í minnihluta. Stærsti fjórflokkurinn sem virðist hafa náð yfirhöndinni, þar á meðal vegna afskipta forystunnar á landsvísu ætti að skammast sín og vona ég að kjósendur muni eftir því í næstu kosningum. Hér hafa átt sér pólitísk hrossakaup og fylgir spillingin yfirleitt á eftir með tilheyrandi kostnaði fyrir bæjarfélagið.
Ykkur Kópavogsbúa sem kusu okkur vegna okkar grunngilda vil ég biðja innilegrar afsökunar sem og aðra Kópavogsbúa sem héldu að loforð stæðu hjá stjórnmálaafli. Ég er verulega leið yfir þessu og mun segja mig af Y-Listanum
Þetta er sorglegt!
Ásdís Ólafsdóttir.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Husky beit smáhund næstum til ólífis í Grafarvogi
Of mikið gert úr lokun bankaútibúa?
„Miklu miklu alvarlegra brot en sérstakur lætur í veðri vaka“
Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn
Sakborningur í Straumsvíkurmálinu í skýjunum eftir dóminn
