Ármann Kr. Ólafsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, verður nýr bæjarstjóri í sveitarfélaginu þegar nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Lista Kópavogsbúa tekur við á fundi bæjarstjórnar á þriðjudag. Þetta hefur DV eftir öruggum heimildum. Gunnar I. Birgisson verður formaður framkvæmdaráðs bæjarins.
Ómar Stefánsson, oddviti Framsóknarflokksins, verður forseti bæjarstjórnar en Rannveig Ásgeirsdóttir, oddviti Lista Kópavogsbúa, verður formaður bæjarráðs. Þetta þýðir að Rannveig hafi í meirihlutaviðræðunum vikið frá áður ófrávíkjanlegri kröfu um að bæjarstjórinn í Kópavogi komi utan raða kjörinna fulltrúa. Það var meðal þeirra mála sem kom í veg fyrir að flokkurinn vildi vinna með Samfylkingu og Vinstri grænum í bæjarstjórninni.
Ekki hefur verið starfhæfur meirihluti í bæjarstjórn Kópavogs síðan fyrir rúmum þremur vikum síðan en þá sagði Hjálmar Hjálmarsson, fulltrúi Næst besta flokksins, sig úr meirihlutasamstarfi við Samfylkinguna, Vinstri græna og Lista Kópavogsbúa. Var það vegna ósætta sem komu upp í kjölfar þess að ákveðið var að segja núverandi bæjarstjóra Kópavogs upp störfum.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Husky beit smáhund næstum til ólífis í Grafarvogi
Of mikið gert úr lokun bankaútibúa?
„Miklu miklu alvarlegra brot en sérstakur lætur í veðri vaka“
Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn
Sakborningur í Straumsvíkurmálinu í skýjunum eftir dóminn
