Konan sem fannst látin í húsi við Skúlaskeið 8 í Hafnarfirði á mánudag hét Þóra Eyjalín Gísladóttir. Hún var 35 ára gömul.
Hlífar V. Stefánsson, 22 ára Hafnfirðingur, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 21. febrúar, grunaður um að hafa valdið dauða hennar.
Þóra og Hlífar höfðu átt í ástarsambandi og voru um tíma trúlofuð. „Þetta var svona „haltu mér, slepptu mér“ kærustupar,“ segir vinkona Þóru. Sambandið var stormasamt og erfitt að vita hvenær þau voru saman og hvenær ekki.
„Hún var góð manneskja og góð vinkona,“ segja vinir sem minnast Þóru í DV í dag. Nánar er fjallað um málið í prentútgáfu DV.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Husky beit smáhund næstum til ólífis í Grafarvogi
Of mikið gert úr lokun bankaútibúa?
„Miklu miklu alvarlegra brot en sérstakur lætur í veðri vaka“
Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn
Sakborningur í Straumsvíkurmálinu í skýjunum eftir dóminn
