Illa falið vændi á smáauglýsingasíðum. Nú þarf enginn að kaupa sér vændi alveg óvart. Samsett mynd: DV
„Því miður virðist samstarf lögreglunnar og þeirra miðla sem auglýsa vændi ekki hafa borið þann ávöxt sem vonast var eftir því um nokkurt skeið hafa auglýsingarnar verið daglegt brauð í Fréttablaðinu,“ segir í tilkynningu frá samtökunum Stóra systir sem harma að vændisnuddauglýsingar sem hurfu um tíma af síðum Fréttablaðsins séu aftur farnar að birtast.
Á síðasta ári fór Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu í samstarf við auglýsingadeild Fréttablaðsins þar sem skorið var upp herör gegn dulbúnum vændisauglýsingum í smáauglýsingadálkum blaðsins.
Til að bregðast við þessu hefur Stóra systir ákveðið að senda frá sér einfaldar leiðbeiningar sem gera öllum kleift að greina á milli auglýsinga sem bjóða upp á alvöru, löglegt nudd og dulbúinna vændisauglýsinga. Þær eru eftirfarandi:
a) Nafn fyrirtækis eða rekstraraðila er ekki skrifað undir auglýsinguna
b) Símanúmer sem gefið er upp í auglýsingunni er óskráð farsímanúmer
c) Auglýsingin er á ensku
d) Engin starfsemi nuddstofu er skráð á það heimilisfang sem gefið er upp
e) Ef kona hringir til að panta tíma í nudd er ómögulegt að finna tíma fyrir hana
„Er það von Stóru systur að þessar leiðbeiningar muni koma Fréttablaðinu, lögreglunni og fleirum að gagni sem vilja losna við ólöglegar auglýsingar um vændi,“ segir að lokum í tilkynningu samtakanna.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Husky beit smáhund næstum til ólífis í Grafarvogi
Of mikið gert úr lokun bankaútibúa?
„Miklu miklu alvarlegra brot en sérstakur lætur í veðri vaka“
Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn
Sakborningur í Straumsvíkurmálinu í skýjunum eftir dóminn
