„Í fyrsta lagi að átta mig á því að það voru mistök. Svo gæti ég hætt á þingi,“ segir Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við DV.is aðspurður hvernig hann hyggst bera ábyrgð vegna lífeyrissjóðamálsins.
Í viðtali við Ríkisútvarpið sagðist Pétur Blöndal axla sína ábyrgð á því að hafa átt þátt í lagabreytingum á Alþingi sem juku heimildir lífeyrissjóða til að kaupa hlutabréf.
Pétur bendir á að þessi mörk haf aldrei verið notuð þar sem lífeyrissjóðirnir hafi verið langt fyrir neðan þau, bæði fyrri og seinni mörkin.
Pétur er fyrrverandi formaður efnahags- og skattanefndar en á vef Ríkisútvarpsins kemur fram að árið 1997 hafi 35 prósent af hreinni eign lífeyrissjóða mátt liggja í hlutabréfum. Rétt fyrir hrun var þessi heimild komin upp í 60 prósent.
Líkt og Pétur segir við DV.is þá getur það komið til greina að hann axli ábyrgð með því að hætta á þingi. Þegar hann er spurður hvort að það muni koma til þess svarar hann: „Ég veit það ekki. Ef ég fengi tækifæri til þess þá myndi ég hætta því,“ segir Pétur og bætir við: „Ég er alltaf að íhuga það. Það er ekki eftirsóknavert að vera á þingi ef menn skyldu halda það,“ segir Pétur sem veit ekki hvort að hann muni klára kjörtímabilið.
„Mér þykir einnig ankanalegt að stjórnmálamaður á að bera ábyrgð en ekki stjórn sjóðanna sem tóku ákvarðanir um fjárfestinguna,“ segir Pétur.
Hann bendir á að lagabreytingunni, þar sem lífeyrissjóðum var leyft að fjárfesta meira í hlutabréfum, var einnig fagnað af stjórnarandstöðunni fyrir hrun.
Pétur segir að það hefði vel mátt setja spurningarmerki við þessar lagabreytingar á þeim tíma. „Og þá sérstaklega eftir á. Það er athyglisvert hvað margir verða klókir eftir á,“ segir Pétur.
Hann segir foringjaræði hafa verið áberandi á árunum fyrir hrun. „Það er það sem rannsóknarskýrsla Alþingis gagnrýndi. Ég tek á mig þá ábyrgð að hafa fallið í þá gryfju með öllum hinum að horfa ekki á frumvörp frá ríkisstjórninni með gagnrýnum augum. Að velta því ekki fyrir sér hvort þetta var skynsamlegt eða ekki.“



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Husky beit smáhund næstum til ólífis í Grafarvogi
Of mikið gert úr lokun bankaútibúa?
„Miklu miklu alvarlegra brot en sérstakur lætur í veðri vaka“
Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn
Sakborningur í Straumsvíkurmálinu í skýjunum eftir dóminn
