Húsið þar sem konu á fertugsaldri var ráðinn bani í gær. Karlmaður á þrítugsaldri er í haldi lögreglu vegna málsins. MYND: PRESSPHOTOS.BIZ
Karlmaðurinn sem grunaður er um að hafa orðið vinkonu sinni að bana í fyrrinótt er rúmlega tvítugur. Hann mun hafa sjálfur leitað til lögreglunnar í Hafnarfirði í gær og var í miklu uppnámi og annarlegu ástandi þegar hann bar þar að garði en átti mjög erfitt með að gera sig skiljanlegan.
Samkvæmt heimildum DV þekktu lögreglumenn til hans og töldu ástæðu til að kanna hvað hefði gerst. Fóru því lögreglumenn að heimili hans þar sem vinkona mannsins, kona á fertugsaldri, fannst látin. Aðkoman að húsinu mun hafa verið mjög slæm og mikið blóð á vettvangi. Hnífur sem fannst á vettvangi sem talið er að hafi verið notaður til verksins og hefur hann þegar verið sendur í lífssýna rannsókn.
„Þetta er bara sorglegt og afar óhugnanlegt,“ sagði íbúi við Skúlaskeið í Hafnarfirði í samtali við DV í gærkvöldi en maðurinn sem er í haldi lögreglu hafði búið í húsinu um árabil. Hann hefur bæði komið við sögu lögreglu og nágranna sem oft hafa orðið varir við annarlegt ástand hans.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Husky beit smáhund næstum til ólífis í Grafarvogi
Of mikið gert úr lokun bankaútibúa?
„Miklu miklu alvarlegra brot en sérstakur lætur í veðri vaka“
Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn
Sakborningur í Straumsvíkurmálinu í skýjunum eftir dóminn
