ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 9m/s S

Framboð Lilju heitir Samstaða

Ætlar að höfða til þeirra sem ofbýður spillingin á Íslandi
Atli Þór Fanndal atli@dv.is
16:22 › 7. febrúar 2012
Frá kynningarfundi flokksins í Iðnó.

Frá kynningarfundi flokksins í Iðnó. Mynd Atli Fanndal

Samstaða á að höfða til kjósenda sem ofbýður spillingin í íslensku samfélagi og misbíður misskiptingin í samfélaginu. Þetta kom fram í orðum Lilju Mósesdóttur þingkonu og eins stofnanda flokksins a kynningarfundi Samstöðu í Iðnó nú rétt í þessu. Formaður flokksins er Lilja sjálf en varaformenn eru Sigurður Þ. Ragnarsson, jarð- og veðurfræðingur, og Agnes Arnardóttir.

Samstaða flokkur lýðræðis og velferðar vill að löggjöf samfélagsins og skattkerfi verði notað til að ná fram jöfnuði, samstöðu og sameiginlegum velferðargrunni. Þetta kemur fram í stofnskrá flokksins sem kynnt var á fundi flokksins í Iðnó í dag. Þá segir að flokkurinn telji rétt allra til atvinnu vera mannréttindamál og að flokkurinn hyggist vinna að þróun fjölþátta hagkerfis þar sem samvinnu-, opinber- og einkarekstur dafni á viðeigandi sviðum.

Lilja sagði flokkinn ekki vilja skilgreina sig til hægri eða vinstri og nefndi sem ástæðu að hægriflokkar líti iðulega til markaðsins í leit að lausnum en vinstriflokkarnir til ríkisins. Samstaða ætli sér að leita lausna úr fjölbreyttum grunni.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?