„Þetta þýðir mesta skerðingu til þeirra sem eru komnir á eða fara fljótlega á eftirlaun. Sjóðirnir hafa verið að skera niður lífeyrisgreiðslur og það kæmi mér ekki á óvart ef það væri að jafnaði 20 til 30 prósenta skerðing,“ segir Ingólfur H. Ingólfsson, fjármálaráðgjafi og stjórnarformaður Sparnaðar. Hvað varðar yngra fólk segir Ingólfur að það þurfi að bæta upp skaðann og það sé tíminn sem vinni það upp. „Því yngri sem menn eru því minni áhrif. Þeir sem eru hins vegar að fara á lífeyrinn á næstu tíu árum munu ekki fá eins mikinn lífeyri og þeir hefðu fengið ef lífeyrissjóðirnir hefðu ekki tapað þessum fjárhæðum.“
Tefur um 10 til 15 ár
Hann segir að menn hafi talað um að sjóðirnir yrðu fullburða og gætu uppfyllt ýtrustu kröfur um lífeyrisgreiðslur þegar inngreiðslur yrðu jafnar lífeyrisgreiðslunum. „Þetta áfall mun tefja þetta um 10 til 15 ár frá því sem reiknað var með fyrir hrun. Það mun því taka miklu lengri tíma fyrir fólk að ná fullum lífeyrisréttindum.“ Auk þess gera útreikningar lífeyrissjóðanna ráð fyrir að ávöxtun þeirra sé 3,5 prósent umfram verðbólgu. Nái þeir því ekki yfir ákveðinn tíma verði þeir að grípa til aðgerða, eins og að skerða lífeyrisréttindi.
Nánar er fjallað um málið í DV í dag. Áskrifendur að DV.is geta lesið alla fréttina ef þeir ýta á meira



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Husky beit smáhund næstum til ólífis í Grafarvogi
Of mikið gert úr lokun bankaútibúa?
„Miklu miklu alvarlegra brot en sérstakur lætur í veðri vaka“
Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn
Sakborningur í Straumsvíkurmálinu í skýjunum eftir dóminn
