ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 9m/s S

Óeðlilegur titringur í Þór

Rolls Royce kíkir á skipið
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
10:29 › 6. febrúar 2012

Varðskipið Þór lagði af stað til Bergen í Noregi í gær en Rolls Royce þar í landi mun ljúka framkvæmdum við skipið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni en framkvæmdirnar eru vegna óeðlilegs titrings í aðalvél skipsins.

Áætlað er að skipið verði komið til Bergen á miðvikudag og að verkið taki fjórar vikur. Gerðar hafa verið ráðstafanir til að varðskipin Ægir og Týr taki til skiptis við hlutverki Þórs við gæslustörf hér við land meðan á þessum framkvæmdum stendur en rekstraráætlanir fyrir árið 2012 gera ráð fyrir einu varðskipi á sjó við landið árið um kring.

„Eins og fram hefur komið er lögð mikil áhersla á að nýta ábyrgðartíma vélanna sem er 18 mánuðir og er vinna þessi alfarið á ábyrgð framleiðanda vélanna, Rolls Royce í Noregi. Landhelgisgæslan mun ekki bera neinn kostnað af framkvæmdunum. Ábyrgðartími véla og skips lengist sem nemur framkvæmdartíma vegna þessa,“ segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?