Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Eins og sjá má eru talsverðar skemmdir á húsinu eftir eldsvoðann sem greiðlega gekk að slökkva. Mynd: Pressphotos.biz
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út laust fyrir klukkan átta í kvöld þar sem tilkynnt var um eldsvoða í húsi við Eikjuvog í Reykjavík.
Tvær manneskjur voru í húsinu þegar eldurinn kom upp en náðu að forða sér út áður en slökkvilið bar að garði.
Slökkviliðið náði fljótt tökum á eldinum og var unnið að því að reykræsta húsið nú fyrir stundu. Ekki er vitað hvort heimilisfólkið hafi sakað í brunanum. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd urðu talsverðar skemmdir á húsinu.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Husky beit smáhund næstum til ólífis í Grafarvogi
Of mikið gert úr lokun bankaútibúa?
„Miklu miklu alvarlegra brot en sérstakur lætur í veðri vaka“
Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn
Sakborningur í Straumsvíkurmálinu í skýjunum eftir dóminn
