Karlmaður á þrítugsaldri gaf sig fram við lögreglu í morgun. Hann er grunaður um að hafa ráðið konu bana í Hafnarfirði.
Karl á þrítugsaldri er í haldi lögreglunnar, grunaður um manndráp. Í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að maðurinn, sem var í annarlegu ástandi, kom sjálfur á lögreglustöð í morgun og greindi frá atviki sem hafði átt sér stað á heimili hans í Hafnarfirði.
Framburður hans var um margt óljós en strax var haldið heim til mannsins og þar fannst kona á fertugsaldri. Hún var látin þegar að var komið en á henni voru sjáanlegir áverkar. Konan var gestkomandi á heimili mannsins en þau höfðu þekkst um hríð. Lagt var hald á eggvopn í þágu rannsóknarinnar. Maðurinn sem nú er í haldi hefur áður komið við sögu hjá lögreglu.
Rannsókn málsins er á frumstigi og ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu, að því er fram kemur í tilkynningunni.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Husky beit smáhund næstum til ólífis í Grafarvogi
Of mikið gert úr lokun bankaútibúa?
„Miklu miklu alvarlegra brot en sérstakur lætur í veðri vaka“
Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn
Sakborningur í Straumsvíkurmálinu í skýjunum eftir dóminn
