ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 9m/s S

Manndráp í Hafnarfirði: „Afar óhugnanlegt“

Nágrönnum afar brugðið - Hinn grunaði verið lengi í óreglu
18:09 › 6. febrúar 2012
Húsið þar sem konu á fertugsaldri var ráðinn bani í morgun. Karlmaður á þrítugsaldri er í haldi lögreglu vegna málsins.

Húsið þar sem konu á fertugsaldri var ráðinn bani í morgun. Karlmaður á þrítugsaldri er í haldi lögreglu vegna málsins. Mynd: Pressphotos.biz

„Þetta er bara sorglegt og afar óhugnanlegt,“ segir íbúi við Skúlaskeið í Hafnarfirði í samtali við DV en karlmaður á þrítugsaldri situr nú í haldi lögreglu grunaður um að hafa orðið konu á fertugsaldri að bana í götunni.

Maðurinn hefur samkvæmt upplýsingum DV verið í óreglu um nokkurt skeið og búið um árabil í húsinu sem sést á meðfylgjandi mynd og hafa nágrannar reglulega orðið hans varir í annarlegu ástandi.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var maðurinn undir áhrifum vímugjafa þegar hann gaf sig fram við lögreglu í morgun og greindi frá voðaverkinu.

Áverkar voru líki konunnar sem var látin þegar lögreglan kom á vettvang. Lagt var hald á eggvopn í þágu rannsóknarinnar en maðurinn hefur áður komið við sögu hjá lögreglu.

Íbúum við götuna var að sögn viðmælanda DV afar brugðið þegar fréttir bárust af því í dag hvað gerst hafði í húsinu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?