ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 9m/s S

Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir

Össur: ,,Íslendingar ætla að skera upp herör gegn misnotkun á börnum"
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:15 › 6. febrúar 2012
ÖssuR Skarphéðinsson boðar hertar aðgerðir gegn barnaníðingum sem verða eltir uppi hvar sem til þeirra næst.

ÖssuR Skarphéðinsson boðar hertar aðgerðir gegn barnaníðingum sem verða eltir uppi hvar sem til þeirra næst.

Íslensk hegningarlög munu ná yfir Íslendinga sem ferðast til annarra landa til að misnota börn, jafnvel þó engin lög í viðkomandi landi banni það. Sömuleiðis verður ferill þeirra sem sækja um störf sem tengjast börnum skoðaður. Einnig mun í fyrsta sinni varða við lög ef fullorðnir reyna að tæla börn á spjallrásum, eða nota þær í einhverjum tilgangi til að koma fram kynferðislegri misneytingu á börnum.

Þetta felst í tillögu sem Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hefur lagt fyrir Alþingi um að það fullgildi aðild Íslands að alþjóðlegum samningi gegn misneytingu barna. Ráðherrann segist vera að svara réttmætum aðfinnslum Unicef um ónóga vernd barna af Íslands hálfu.

„Þetta er sögulegur samningur og felur í rauninni í sér að Íslendingar ætla að skera upp herör gegn misnotkun á börnum hvað sem hún er. Rannsóknir á vegum Evrópuráðsins hafa sýnt að fimmta hvert barn verður fyrir einhvers konar misneytingu, og sumir bera þess merki til æviloka. Við þurfum að gera allt sem við getum til að útrýma þessum glæpum, sem eru hroðalegastir allra glæpa,“ sagði Össur í viðtali við DV.is.

Össur segir að í samningnum sé m.a. það nýmæli í honum séu ákvæði varðandi nýja tegund ofbeldis eins og kynferðislega misneytingu barna með tilstilli upplýsinga- og samskiptatækni en því hafa aðrir alþjóðasamningar ekki tekið á.

„Samningurinn skapar þannig grundvöll til að sporna við því þegar fullorðnir einstaklingar falast af ásettu ráði eftir börnum t.d. á spjallrásum í kynferðislegum tilgangi eða láta börn vísvitandi verða vitni að kynferðislegri misnotkun eða kynferðislegum athöfnum. Þar fyrir utan leggur hann til leiðir til að berjast gegn kynferðislegu ofbeldi gegn börnum í hefðbundnum skilningi en líka barnavændi, barnaklámi og ferðaþjónustu sem beinist að kynferðislegri misnotkun barna.“

Hann segir að til séu fyrirtæki erlendis sem beinlínis geri út á að flytja dreggjar evrópskra og amerískra karla til þróunarlanda, þar sem löggjöf og eftirlit séu frumstæð, og auðvelt að komast yfir varnarlaus börn. „Þegar yfirvöld í Taílandi skáru upp herör gegn þessum óþverra fluttu þau sig bara til annarra landa, einsog Vestur-Afríku, þar sem allt er falt fyrir fé, líka lítil börn. Þetta var eitt mesta áhyggjuefni yfirvalda í Tógó þegar ég kom þangað fyrir nokkrum árum á vegum hjálparsamtaka fyrir vegalaus börn.“

Össur segir að ein leið til að fæla menn frá grimmdarverkum af þessu tagi sé að láta refsilögsögu landanna ná yfir svona verknað þeirra eigin ríkisborgar, jafnvel þó hann sé framinn í erlendu landi, þar sem engin slík lög sé að finna.

Samningurinn sem um ræðir er Evrópuráðssamningurinn gegn misneytingu barna, sem kenndur er við Lanzarote. Fyrir skömmu gerði Unicef athugasemdir við að Ísland hefur ekki fullgilt samninginn. Össur segist m.a. vera að svara þeim aðfinnslum með því að leggja samninginn fyrir Alþingi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?