ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 9m/s S

Garðyrkjustjóri sagður hafa dregið sér fé til að borga laun starfsmanna

Starfsmaður Orkuveitunnar sakaður um fjárdrátt
Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is
10:19 › 6. febrúar 2012

Í dag fer fram aðalmeðferð í máli Kristins H. Þorsteinssonar fyrrverandi garðyrkjustjóra Orkuveitu Reykjavíkur, en sérstakur saksóknari hefur ákært hann fyrir fjárdrátt.

Kristinn er sagður hafa dregið sér um 28 milljónir króna á tímabilinu 2003 til 2008 og fyrir að gefa sjálfur út 58 tilhæfulausa reikninga í þessu skyni auk fylgiskjala og að hafa móttekið reikningana.

Samkvæmt ákærunni, sem gefin var út rétt fyrir áramót, hófst fjárdrátturinn í nóvember árið 2003 og stóð allt til loka septembermánaðar 2008. Kristni er þó ekki gefið að sök að hafa dregið sér féð sjálfum sér til hagsbóta heldur til að greiða tveimur starfsmönnum Garðyrkjufélags Íslands laun en maðurinn var á þessum tíma formaður félagsins. Hann er sagður hafa notað féð til að greiða tveimur konum sem störfuðu hjá félaginu á þessu tímabili laun.

Kristni var sagt upp störfum hjá OR haustið 2008 þegar upp komst um málið. Orkuveitan krefst þess að milljónirnar 26 verði endurgreiddar með vöxtum og vill sérstakur saksóknari að maðurinn verði dæmdur til refsingar, sem getur verið allt að sex ára fangelsi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?