ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 9m/s S

Fjórar konur sögðu sig úr FKA í síðustu viku

Ólga innan Félags kvenna í atvinnurekstri eftir að Já fékk verðlaun
20:40 › 6. febrúar 2012
Dominique Plédel var ekki ein um að segja sig úr FKA í liðinni viku.

Dominique Plédel var ekki ein um að segja sig úr FKA í liðinni viku. Mynd: DV

Fjórar konur sögðu sig úr Félagi kvenna í atvinnurekstri í síðustu viku en talsverðrar ólgu hefur gætt innan félagsins síðan ákveðið var að veita fyrirtækinu Já verðlaunin Gæfusporið 2012.

DV sagði frá því á föstudag að Dominique Plédel eigandi Vínskólans hefði sagt sig úr félaginu vegna óánægju með ákvörðun FKA. Gagnrýnin hefur meðal annars beinst að því að Já hafi lokað þremur kvennavinnustöðum á síðustu árum og sagt upp 30 konum í hagræðingarskyni.

Hulda Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri FKA, segir í pósti sem DV barst í kjölfar umfjöllunar um málið að þó fjórar konur hafi ákveðið að segja sig úr félaginu í síðustu viku hafi tvær konur sótt um inngöngu í félagið á sama tíma. Alls hafi 20 konur gengið í FKA frá áramótum og eru í dag yfir 750 konur í félaginu.

„Það eru alltaf reglulegar úrsagnir úr félaginu og svo bætast við nýjar sem koma inn á sínum forsendum,“ segir Hulda. Að öðru leyti vísar hún í bréf sem félagskonur fengu sent í liðinni viku þar sem ákvörðun FKA að veita Já Gæfusporið er varin.

Sjá einnig:
„Mínar hugsjónir liggja annarsstaðar“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?