ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 9m/s S

„Eftir svona áfall er svo erfitt að þegja“

Sálfræðingur segir að eftirköstin af alvarlegum slysum geti reynst meira áfall en atvikið sjálft
12:34 › 6. febrúar 2012
Rússneskum sjómanni bjargað við Noreg. (Reuters)

Rússneskum sjómanni bjargað við Noreg. (Reuters)

  • Sálfræðingur segir að óvissan fyrir fjölskylduna geti verið verri en áfallið sem Eiríkur upplifði þegar hann lenti í sjónum.

    Sálfræðingur segir að óvissan fyrir fjölskylduna geti verið verri en áfallið sem Eiríkur upplifði þegar hann lenti í sjónum.

Björn Vernharðsson, sálfræðingur hjá Hugfari, hefur reynslu af því að veita áfallahjálp eftir slys. Hann segir að þegar menn lenda í áföllum sambærilegum þeim sem Eiríkur Ingi Jóhannsson lenti í þegar Hallgrímur SI-77 sökk í aftakaveðri við Noregsstrendur sé besta ráðið að taka bómullina úr eyrunum og hlusta bara.

„Fólk þarf að endursegja söguna oft og fara yfir það sem gerðist. Það gerist eitthvað í líkamanum og allt er breytt, það þarf að koma honum aftur í ró. Fólk finnur fyrir spennu sem það getur fundið fyrir aftur og aftur. Þú sérð það hvernig Eiríkur Ingi lifði sig inn í frásögnina í Kastljósi. Þetta var ævintýraleg frásögn sem stendur yfir í áttatíu mínútur. En hann situr bara þarna og segir söguna og gerir það með þeim hætti að maður getur ekki hætt að hlusta. Svona getur hann haldið áfram því hann er að upplifa það í rólegheitunum hvað gerðist í raun og veru. Eftir svona áfall er svo erfitt að þegja. Þörfin fyrir að tala getur komið upp hvenær sem er. Spennan líka. Hann gæti þess vegna fundið næst fyrir henni eftir tvö ár þegar hann er í stressi og það er eitthvað að gerast hjá honum, hann er kannski að sækja um vinnu og á að mæta í atvinnuviðtal og þá kemur þetta allt í einu upp aftur og þessi minning verður sterk.“

Nánar er fjallað um málið í DV í dag. Áskrifendur að DV.is geta lesið alla fréttina ef þeir ýta á meira

Meira »

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?