ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 9m/s S

Magnús rekinn í þrot

Skuldaði 1.900 milljónir króna
07:30 › 6. febrúar 2012
Magnús Jónatansson.

Magnús Jónatansson.

Magnús Jónatansson, athafnamaður og einn stærsti skuldari sparisjóðsins Byrs, hefur verið úrskurðaður gjaldþrota. Héraðsdómur Reykjaness úrskurðaði Magnús gjaldþrota þann 26. janúar síðastliðinn.

Magnús var einna þekktastur fyrir að vera einn af aðstandendum eignarhaldsfélaganna Góms og Lindbergs, ásamt Ólafi Garðarssyni lögmanni,sem keyptu tugi fasteigna í Örfirisey í lok árs 2006 og byrjun árs 2007. Stærstu hluthafarnir voru Magnús og Sparisjóðabankinn, Icebank, sem báðir voru með 35 prósenta eignarhlut.

Magnús, sem fyrst og fremst stundaði fasteignaviðskipti í fjárfestingum sínum, var áttundi stærsti skuldari sparisjóðsins Byrs í nóvember 2008. Skuldir hans og félaga tengdra honum námu þá nærri 1,9 milljörðum króna. Þetta kom fram í lánabók Byrs sem DV greindi frá síðastliðið sumar.

Meira »

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?