ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 9m/s S

Kallar Davíð pólitískan „hryðjuverkamann“

Fáir menn unnið þjóð sinni jafn mikið tjón
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:18 › 5. febrúar 2012

„Fáir stjórnmálamenn hafa unnið þjóð sinni jafn mikið tjón og Davíð Oddsson hefur gert. Hann er því réttnefndur pólitískur hryðjuverkamaður.“ Þetta er á meðal þess sem þingmaðurinn Björn Valur Gíslason skrifar í stuttum pistli á bloggsíðu sinni á Smugunni. Eru þessi hörðu ummæli viðbrögð við Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins, en þar fór Davíð hamförum og kom til að mynda fram með alvarlegar ásakanir í garð Rannsóknarnefndar Alþingis og forsvarmanna stjórnarflokkanna.

Björn Valur segir jafnframt að það sé mikilvægt fyrir Davíð að komas undan vitnaleiðslum fyrir landsdómi, þar sem hann beri svo mikla ábyrgð á ástandinu sjálfur: „Enginn stjórnmálamaður á því jafn mikið undir því og Davíð Oddsson að komast undan vitnaleiðslum fyrir landsdómi. Það er ótrúlegt hvað margir eru viljugir að aðstoða hann við það. Hversvegna ætli það sé?“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?