Jón Egilsson þarf að greiða 100 þúsund fyrir hegðun sína í réttarsal. Mynd Fréttablaðið/Stefán Karlsson
„Jón getur reynt að þræta fyrir sína framkomu en það voru vitni að þessum atburði. Það var að mínu mati rétt ákvörðun af dómara að sekta hann fyrir þessa ósæmilegu hegðun,“ segir Bryndís Eiríksdóttir, aðstandandi manns af portúgölskum uppruna, sem í vikunni hlaut miskabætur vegna líkamsárásar. Hæstaréttarlögmaðurinn Jón Egilsson var verjandi annars mannsins sem krafinn var um bætur vegna árásarinnar. Dómurinn dæmdi Jón til greiðslu réttarfarssektar að upphæð 100.000 krónum fyrir ósæmilega hegðun í réttarsal.
Í aðsendri grein á vefmiðlinum Pressunni segist Jón með látbragði sínu hafa verið að sýna hvernig hræddur maður hegðar sér. Grein Jóns ber yfirskriftina „Umbjóðandi sýknaður en lögmaðurinn sektaður – bannað að lýsa hræðslueinkennum“.
Einkamál hafi verið höfðað á hendur umbjóðenda sínum vegna áfallastreituröskunar. „Eftir að hafa lesið um áfallastreituröskun og lagt fram gögn fræðimanna um þessa „ofsahræðslu” fyrir dóminn var undirritaður f.h. umbjóðanda síns sannfærður um að brotaþoli hefði ekki orðið svona hræddur í deilunum eða átökunum í nóvember 2006.“ Fræðileg skilgreining röskunarinnar sé meðal annars að viðkomandi hafi upplifað hræðilega ógn sem geri honum ókleift að hugsa, tjá sig eða hegða sér á venjulegan hátt. Ógnin setji allt innra jafnvægi viðkomandi í uppnám. „Til að undirstrika þessi sjónarmið umbjóðanda síns sýndi undirritaður, þegar þessi
málsástæða var til umfjöllunar í málflutningsræðu, hvernig hræddur maður hegðar sér og þá í þeim tilgangi að sýna fram á að það hefði ekki farið fram hjá lögreglumönnum, vitnum, læknum og hjúkrunarfólki enda hefðu þá allir veitt ofsahræðslu brotaþola athygli,“ skrifar Jón.
Bryndís segir við DV að henni hafi misboðið framganga Jóns í réttarsalnum. Þá sé hann í grein sinni að reyna að gera lítið úr þeim atburði sem þolandinn varð fyrir. Dómarinn hafi í nokkur skipti þurft að biðja Jón að halda sér við efnið og að hann hafi sýnt fórnarlambi árásarinnar lítilsvirðingu.
Hún segir einnig að í greininni á Pressunni haldi hann fram hlutum sem dómurinn hafi hrakið, til dæmis um það hvernig aðdragandi árásarinnar var.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Husky beit smáhund næstum til ólífis í Grafarvogi
Of mikið gert úr lokun bankaútibúa?
„Miklu miklu alvarlegra brot en sérstakur lætur í veðri vaka“
Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn
Sakborningur í Straumsvíkurmálinu í skýjunum eftir dóminn
