ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.7° 10m/s S

Neitaði að yfirgefa fangaklefann

Fáheyrt atvik í fangageymslu
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
08:59 › 5. febrúar 2012

Fáheyrt atvik átti sér stað í fangageymslu á lögreglustöðinni Hverfisgötu í nótt, að því er fram kemur í upplýsingum frá varðstjóra lögreglunnar. Nóttin var nokkuð erilsöm og verkefni hefðbundin. Frá miðnætti til klukkan sex í morgun höfðu verið bókuð um áttatíu mál í dagbók lögreglunnar.

Eitt þessara mála var nokkuð sérstakt. Um klukkan hálf tvö í nótt var tæplega þrítugur karlmaður handsamaður eftir að hafa lent í átökum við dyraverði á árshátíð sem haldin var í austurborginni. Hann var fluttur á lögreglustöð í kjölfarið. Þar neitaði hann alfarið að gefa upp nafn og var því vistaður í fangaklefa. Nokkru síðar fundust á honum skilríki og þegar kona hans kom loksins til að sækja hann þá neitaði hann að yfirgefa fangageymslur.

Hann gistir nú fangageymslu og verður gerð önnur tilraun til að koma honum út með morgninum, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Það mun vera afar óalgengt að menn neiti að yfirgefa fangageymslur.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?