Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, spyr í pistli sem hann hefur birt á bloggi sínu, hversvegna Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, svarar ekki spurningum DV í tengslum við Vafningsmálið. „Af hverju í ósköpunum kemur ekkert svar frá Bjarna Benediktssyni?“ Spyr Mörður meðal annars í pistlinum og segir Bjarna ekki ennþá hafa svarað hinni frægu grein Hallgríms Helgasonar um Glitni, Milestone, Sjóvá og Vafning, með neinu öðru en fúkyrðum.
Eins og DV hefur grein frá vill Bjarni ekki svara spurningum DV þar sem hann er spurður um skjöl sem undirritaði þar sem hann fékk umboð til að veðsetja hlutabréf í eignarhaldsfélaginu Vafningi hjá Glitni í febrúar 2008. Skjölin voru dagsett 8. febrúar 2008 en voru hins vegar útbúin síðar en í ákæru sérstaks saksóknara í málinu kemur fram að Vafningur hafi fengið lánið þann 12. febrúar en ekki þann 8. líkt og talið hefur verið.
„Það er ekki Hallgríms, eða DV, eða mitt, að segja til um hvort Bjarni braut lög, og hverjar málsbætur hann þá hefði haft. Ef við viljum fá svör um þann part Vafningsmálsins væri líklega hendi næst að tala við lögregluna. Það er hinsvegar algerlega okkar mál, mitt, Hallgríms, DV, almennings og kjósenda í landinu að fá frá Bjarna svör sem varpi ljósi á siðferðilega stöðu hans við þessa Vafningsgjörninga og stöðu hans við upprifjun þeirra síðar – svo sem núna síðast í fúkyrðaflaumnum yfir Hallgrími Helgasyni.“
Mörður heldur áfram: „Af hverju svararðu ekki Bjarni? Hvað er að? Getur verið að almennileg svör geti spillt hugsanlegum vitnaleiðslum í málinu gegn Glitnismönnum? Að almennileg svör gætu leitt til sérstaks vitnisburðar Bjarna fyrir landsdómi um hvað þingmenn Sjálfstæðisflokksins vissu um stöðu bankanna vorið 2008?“
Eins og fram hefur komið fékk DV þau svör í gegnum þriðja aðila eftir árangurslausar tilraunir að fá svör frá Bjarna að formaður Sjálfstæðisflokksins teldi sig búinn að svara þessum spurningum. Það stenst þó ekki því þær byggja á nýjum upplýsingum úr ákæru sérstaks saksóknara í Vafningsmálinu.
Hér fylgja spurningarnar sem Bjarni vill ekki svara. En lesa má allt um málið í helgarblaði DV:
Spurningar til Bjarna Benediktssonar
1. Hvenær var skrifað undir umboðsskjölin sem veittu þér umboð til að veðsetja hlutabréfin í Vafningi fyrir hönd Hrómundar, Hafsilfurs og BNT?
2. Hvenær skrifaðir þú undir veðsetningarskjölin vegna lánsins frá Glitni til Vafnings? Var það fyrir eða eftir 8. febrúar 2008? Þú hefur sagt, í viðtali við DV á sínum tíma, að legið hafi á að ganga frá lánapappírunum ,,þennan dag". Hvaða dagur var það?
3. Þegar þú skrifaðir undir veðsetningarskjölin vegna veðsetningarinnar á hlutabréfum Vafnings vissir þú þá að Glitnir hefði lánað Milestone beint þann 8. febrúar 2008 til að borga upp lán Þáttar International við Morgan Stanley?
4. Ef svarið við spurningu (3) er já vissir þú þá að Vafningur ætti að taka yfir lán sem Glitnir var þá þegar búinn að veita Milestone?
5. Þegar þú skrifaðir undir veðsetningarskjölin og tókst þátt í endurfjármögnuninni á Glitnisbréfum Þáttar International varstu þá meðvitaður um að starfsmenn Glitnis hefðu hugsanlega gerst brotlegir við lög í viðskiptunum, sbr. ákæran á hendur Lárusi Welding og Guðmundi Hjaltasyni í Vafningsmálinu?
6. Var Glitnir í ábyrgð fyrir láninu sem Morgan Stanley veitti Þætti International?
7. Spilaði endurfjármögnunin á Glitnisbréfum Þáttar International, sem hér er rætt um, inn í þá ákvörðun þína að selja hlutabréf sem þú áttir persónulega í Glitni? Líkt og komið hefur fram gjaldfelldi Morgan Stanley lán Þáttar International vegna ákvæða í lánasamningi félagsins við bankann þar sem fram kom að gera mætti veðkall hjá Þætti International ef gengi bréfa í Glitni færi niður fyrir tiltekið lágmark. Þú vissir það á þessum tíma að áhætta vegna 7 prósenta hlutar í Glitni hafði nú færst yfir á bankann sjálfan vegna aðgerða Morgan Stanley.
Sjá einnig:
Bjarni Ben skrifaði undir fölsuð skjöl



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Husky beit smáhund næstum til ólífis í Grafarvogi
Of mikið gert úr lokun bankaútibúa?
„Miklu miklu alvarlegra brot en sérstakur lætur í veðri vaka“
Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn
Sakborningur í Straumsvíkurmálinu í skýjunum eftir dóminn
