Mjög annasamt var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt, að því er kemur fram í upplýsingum frá varðstjóra. Áberandi mörg tilvik komu upp í nótt þar sem hjón, sambýlisfólk eða fyrrverandi voru að kítast. Ekki urðu nein meiðsl í þessum ágreiningum að vitað sé en ljóst að sumir þurfa að taka sig á áður en dagur ástarinnar, 14.febrúar, gengur í garð.
Um klukkan fimm í nótt var bifreið stöðvuð á Miklubraut, en ökumaður var grunaður um ölvun við akstur. Hann var færður á lögreglustöð þar sem málið fékk hefðbundna meðferð. Þá var tilkynnt um rúðubrot í bifreið á Hverfisgötu við Þjóðleikhúsið á svipuðum tíma. Þar hafði mjög ölvaður maður kastað bjórflösku eftir bifreið og braut afturrúðu bifreiðarinnar. Rætt var við aðilana á vettvangi og telst málið upplýst.
Um klukkan hálf sex var svo tilkynnt um bifreið sem hafði verið ekið á ljósastaur við Miklubraut. Vegfarandi sá bifreiðina fara af staðnum og fylgdi henni eftir. Vísaði hann lögreglu á bifreiðina þar sem henni hafði verið lagt í Hólmavaði. Þar sat ölvaður karlmaður undir stýri er lögregla handtók hann. Hann færður á næstu lögreglustöð þar sem málið fékk hefðbundna afgreiðslu en síðan var hann vistaður í fangageymslu til skýrslutöku seinna í dag.
Þá var tilkynnt um innbrot í húsnæði við Bolholt um klukkan sex. Myntskúffu með um 10-15þús. kr. var stolið. Nokkru seinna var bifreið stöðvuð á Hverfisgötu og ökumaður grunaður um vímuefnaakstur. Var hann færður á næstu lögreglustöð þar sem málið fékk hefðbundna meðferð. Fimmtán mínútur yfir sjö var svo tilkynnt um innbrot í húsnæði við Sóltún. Ekki er vitað hvort einhverju var stolið.
Klukkan hálf átta var tilkynnt um að bifreið hafi verið ekið á aðra bifreið á Arnahrauni. Sú bifreið hafi svo kastast á þriðju bifreiðina. Bifreiðin sem olli tjóninu var ekið af vettvangi en lýsing náðist. Á Flókagötu var bifreiðin stöðvuð og er ökumaður grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna. Var færður á næstu lögreglustöð, bifreiðin sem var skemmd tekin með kranabifreið. Málið var afgreitt með hefðbundnum hætti en ökumaður var síðan vistaður í fangaklefa og verður rætt við hann er af honum rennur í dag.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Husky beit smáhund næstum til ólífis í Grafarvogi
Of mikið gert úr lokun bankaútibúa?
„Miklu miklu alvarlegra brot en sérstakur lætur í veðri vaka“
Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn
Sakborningur í Straumsvíkurmálinu í skýjunum eftir dóminn
