Lilja Mósesdóttir, óháður þingmaður og nefndarmaður í efnahags- og viðskiptanefnd, hefur óskað eftir því að fá úttektarnefnd á fund efnahags- og viðskiptanefndar til að greina frá niðurstöðum úttektar á fjárfestingarstefnu, ákvarðanatöku og lagaumhverfi lífeyrissjóðanna.
Í bréfi sem hún hefur sent á efnahags- og viðskiptanefnd segir: „Úttektarnefndin telur m.a. nauðsynlegt að heildarendurskoðun fari fram á lífeyrissjóðalögunum, einkum þeim köflum sem viðkoma fjárfestingum og fjárfestingarstefnu sjóðanna. Í niðurstöðum úttektarnefndarinnar kemur auk þess fram alvarleg gagnrýni á lagasetningu Alþingis bæði fyrir og eftir 2008. Hér á eftir koma tvö dæmi um gagnrýni sem efnahags- og viðskiptanefndina þarf að ræða og bregðast við:
1. „Sem dæmi má nefna, að hámarki fjárfestinga sjóðanna í hlutabréfum var breytt í áföngum úr 35% af hreinni eign til greiðslu lífeyris í 60%, síðast með lögum 28/2006. Bera breytingar á lífeyrissjóðalögunum með sér að Alþingi hafi fram að falli bankanna verið að bregðast við óskum hagsmunaaðila innan og utan stjórna lífeyrissjóða sem óskuðu eftir rýmri fjárfestingarmöguleikum. Aldrei hefði átt að koma til rýmkunar lagaheimildar til fjárfestingar í hlutabréfum á árunum 2004 og 2006 nema þá að sett væri skilyrði um að ákveðið hlutfall bréfanna væri erlent (Sjá kafla 5.1.2).“ (bindi 2.1, bls. 19)
2. „Með lögum nr. 123/2011 um breytingu á lífeyrissjóðalögunum er lífeyrissjóðum nú heimilt að fjárfesta í íbúðarhúsnæði og reka það, m.a. til útleigu. Ennfremur var lífeyrissjóðunum heimilað en þó ekki skyldaðir til að stofna félag um slíkan rekstur eða gera samning við einkaaðila um reksturinn. Virðast lífeyrissjóðirnir eftir þessar breytingar sjálfir geta keypt og staðið fyrir rekstri íbúðarhúsnæðis. Úttektarnefndinni sýnist þessi breyting vera í andstöðu við 20. gr. lífeyrissjóðalaganna og mjög varasamt fyrir sjóðina að haga slíkum rekstri á þann veg. Telur nefndin að þessi nýju ákvæði beri þess merki að þau séu tæpast sett í samráði við lífeyrissjóðina og séu gott dæmi um nauðsyn þess að semja lagaákvæði um fjárfestingarheimildir sjóðanna upp á nýtt eftir ítarlegar umræður.“ (bindi 2.1, bls. 21)



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Husky beit smáhund næstum til ólífis í Grafarvogi
Of mikið gert úr lokun bankaútibúa?
„Miklu miklu alvarlegra brot en sérstakur lætur í veðri vaka“
Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn
Sakborningur í Straumsvíkurmálinu í skýjunum eftir dóminn
