ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.7° 10m/s S

Hljóp á hurð og slasaðist

Fjarðabyggð ber ekki skaðabótaábyrgð í óvenjulegu máli
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:30 › 5. febrúar 2012
Pilturinn fær engar bætur eftir að hafa slasast illa við að hlaupa á hurð.

Pilturinn fær engar bætur eftir að hafa slasast illa við að hlaupa á hurð.

Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu á fimmtudag að Fjarðabyggð bæri ekki skaðabótaábyrgð vegna slyss sem varð í Grunnskólanum á Eskifirði árið 2007. Slysið varð með þeim hætti að piltur, sem þá var nemandi við skólann og á sextánda aldursári, var í kapphlaupi við skólafélaga sinn um gang skólans. Slík var ferðin á piltinum að hann náði ekki að stöðva sig og hljóp á hurð í skólanum. Gler í hurðinni brotnaði við höggið og skarst pilturinn töluvert.

Niðurstaða mats læknis á piltinum var að hann hefði hlotið 30 prósent varanlega læknisfræðilega örorku vegna slyssins. Pilturinn höfðaði mál og taldi að í hurðinni hefði átt að vera öryggisgler eða þá að líma hefði átt á glerið sjálflímandi öryggisfilmu. Krafðist hann
að viðurkennd yrði skaðabótaskylda Fjarðabyggðar. Hæstiréttur, líkt og héraðsdómur áður, komst að þeirri niðurstöðu að ekki hefði verið skylt að hafa öryggisgler í hurðinni eða plastfilmu á glerinu. Ekki yrði séð að Fjarðabyggð hefði brotið gegn ákvæðum laga um grunnskóla líkt og lögmaður piltsins vildi meina.

Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að slysið hefði orðið vegna aðgæsluleysis piltsins en ekki vegna athafnaleysis Fjarðabyggðar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?