ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.7° 10m/s S

Hafnar alfarið að bera ábyrgð á tapi lífeyrissjóðanna

Jón Ásgeir segist ekki bera ábyrgð
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:36 › 5. febrúar 2012

Jón Ásgeir Jóhannesson, fyrrverandi aðaleigandi Baugs hafnar því alfarið að bera ábyrgð á tapi lífeyrissjóðanna á Glitni. Hann hefur sent frá sér yfirlýsingu til að bregðast við því sem fram kemur í lífeyrissjóðaskýrslunni um að Baugur Group hafi borið ábyrgð á 77 milljarða tapi sjóðanna. Þetta kom fram í fréttum RÚV.

Jón Ásgeir fellst ekki á að hægt sé að kenna sér eða Baugi um tap sjóðanna á Glitni. Það sé meðal annars tilkomið vegna fjárfestinga fyrir 2007 þegar hann og aðilar honum tengdir höfðu engan snertiflöt við bankann. Hvorki þá né seinna hafi þeir stjórnað fjárfestingum lífeyrissjóðanna og framsetning skýrslunnar á tengslum sé villandi.

Jón Ásgeir afneitar einnig tapi vegna Landic hf, FL group og Teymis Hf. Þó að Baugur Group hafi verið hluthafi í þeim þá hafi þau ekki verið undir meirihluta yfirrráðum hans eða Baugs Group. Enn sé ekki ljóst hvers virði þessi fyrirtæki verði á endanum og umræða um að allt sé tapað sé ábyrgðarlaus. Forsvarsmenn lífeyrisjóðanna hafi borið ábyrgð á fjárfestingum þeirra og engir aðrir segir Jón Ásgeir.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?