Séra Gunnar Sigurjónsson, sóknarprestur í Digraneskirkju, hefur ákveðið að bjóða sig fram í komandi biskupskjöri. Í tilkynningu sem Séra Gunnar hefur sent frá segist hann ekki telja sig vera betur til þess fallinn en aðra. Heldur vegna þess að hann beri traust til alls þess góða fólks sem hefur hvatt hann áfram í starfi sínu.
„Ég vil taka höndum saman með þeim sem vinna vilja Þjóðkirkjunni til heilla með því að gera veg Krists sem mestan meðal fólks.“ Hann segir að hlutverk þjóðkirkjunnar sé fyrst og síðast að greiða Jesú Kristi veg á meðal fólks, að miðla orði hans og kærleika hans í verki, ekki síst til þeirra sem halloka fara í samfélagi manna. Það eigi að vera kirkjunni leiðarljós. Öll störf hennar eigi að miða að því einu og þjóna að því marki.
Sex aðrir hafa einnig lýst yfir framboði til embættis biskups Íslands en þau eru Sigríður Guðmarsdóttir, sóknarprestur í Grafarholti, Agnes M. Sigurðardóttir, sóknarprestur í Bolungarvík, Þórir Jökull Þorsteinsson prestur, Sigurður Árni Þórðarson, prestur í Neskirkju, Kristján Valur Ingólfsson, vígslubiskup í Skálholti og Þórhallur Heimisson, sóknarprestur í Hafnarfjarðarkirkju.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Of mikið gert úr lokun bankaútibúa?
„Miklu miklu alvarlegra brot en sérstakur lætur í veðri vaka“
Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn
Sakborningur í Straumsvíkurmálinu í skýjunum eftir dóminn
Taílendingar sólgnir í pylsur
