ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.7° 10m/s S

FL Group tók Glitni yfir með aðstoð Kaupþings

Kaupþing sölutryggði bréfin sem tryggðu yfirtöku FL Group
17:23 › 5. febrúar 2012
Sölutryggingarsamningurinn rennir stoðum undir þá kenningu að Kaupþing hafi aðstoðað FL Group við að ná undirtökunum í Glitni á vormánuðum 2007. Á myndinni er Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings.

Sölutryggingarsamningurinn rennir stoðum undir þá kenningu að Kaupþing hafi aðstoðað FL Group við að ná undirtökunum í Glitni á vormánuðum 2007. Á myndinni er Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings.

Kaupþing sölutryggði tæplega 20 prósenta hlut Karls Wernerssonar, Einars Sveinssonar og tengdra aðila í Glitni fyrir rúmlega 80 milljarða króna í apríl 2007. Á þessum tíma áttu þeir samtals um 27 prósenta hlut í bankanum. Afleiðing sölutryggingarsamningsins var sú að fjárfestingarfélagið FL Group, með þá Jón Ásgeir Jóhannesson og Hannes Smárason í broddi fylkingar, náði undirtökunum í Glitni eins og frægt er orðið. Þetta kemur fram í „samningi um sölutryggingu á hlutafé í Glitni“ sem DV hefur undir höndum. Samningurinn er undirritaður af starfsmanni Kaupþings og þeim Karli Wernerssyni og Einari Sveinssyni.

Samkvæmt samningnum, sem var undirritaður í byrjun apríl 2007, skuldbatt Kaupþing sig til að selja umræddan 20 prósenta hlut í Glitni fyrir 16. apríl 2007 en ellegar átti bankinn að kaupa hlutina sjálfur. Gengið í viðskiptunum var 27,82 krónur. „Komi til þess að bankinn geti ekki selt hlutina, í heild eða að hluta, mun hann sjálfur kaupa þann hluta þeirra sem ekki hefur selst og telst þá kaupandi að þeim hlutum,“ segir í samningnum.

Til þess kom þó ekki þar sem aðilar tengdir FL Group: Baugur, Tom Hunter, Saxbygg, Jötunn Holding, Fons og fleiri aðilar keyptu bréfin í bankanum. Afar ólíklegt verður að teljast að Kaupþing hefði tekið það upp hjá sjálfum sér að gera slíkan sölutryggingarsamning án þess að það væri tryggt að kaupendur væru að bréfunum. Tengsl Kaupþings og FL Group og tengdra aðila voru umtalsverð á árunum fyrir hrunið og vann bankinn náið með helstu stjórnendum félagsins, meðal annars Jóni Ásgeiri. Þá voru Jón Ásgeir og Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings, í góðu talsambandi.

Meira »

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?