Sleðahópar úr björgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar eru nú á leið í útkall í fjallshlíðum Esju, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landsbjörgu. Tilkynning barst frá vélsleðamönnum um 13:40 í dag að einn þeirra hefði orðið fyrir óhappi og þeir þyrftu aðstoð. Viðkomandi fékk höfuðhögg þegar hann féll af sleða sínum á akstri og kvartar yfir verk í höfði, hálsi og baki.
Björgunarsveitarmenn munu fara frá skíðasvæðinu og aka þaðan yfir Skálafell og að slysstað sem er í fjallendi norðan Mósskarðshnjúka. Alls taka um 20 björgunarsveitarmenn þátt í aðgerðinni sem reiknað er með að gangi vel enda færi og veður hið ákjósanlegasta. Þyrla Landhelgisgæslunnar var á æfingaflugi og hefur verið beint á staðinn til aðstoðar.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Of mikið gert úr lokun bankaútibúa?
„Miklu miklu alvarlegra brot en sérstakur lætur í veðri vaka“
Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn
Sakborningur í Straumsvíkurmálinu í skýjunum eftir dóminn
Taílendingar sólgnir í pylsur
