Saga fékk þau svör að lýtalæknar á Landspítalanum teldu óráðlegt að setja inn nýja silíkonpúða á sama tíma og gömlu væru fjarlægðir.
„Það verður nóg að gera hjá lýtalæknum í silíkonaðgerðum ef yfirvöld ætla ekki að endurskoða þetta,“ segir Saga Ýrr Jónsdóttir, lögmaður tuga kvenna sem leita nú réttar síns vegna PIP-brjóstapúða. Í upplýsinga- og leiðbeiningabréfi sem landlæknisembættið hefur sent konum með PIP-brjóstapúða er tekið fram að það sé ákvörðun hverrar og einnar konu hvort hún fái sér nýja púða eða ekki eftir að gölluðu púðarnir hafa verið fjarlægðir.
Saga segir orðalagið í bréfinu þó mjög loðið og í raun ekki ljóst hvort konunum standi það yfir höfuð til boða að fá nýjar fyllingar og hvort það verði þeim þá að kostnaðarlausu. Hún kannaði málið fyrir skjólstæðinga sína og fékk mjög misvísandi svör. Hjá landlæknisembættinu fengust þær upplýsingar að lýtalæknar á Landspítalanum teldu ekki ráðlegt að setja inn nýja púða á sama tíma og gölluðu púðarnir væru fjarlægðir. Það væri því nánast útilokað að konurnar fengju nýja púða.
Meira »


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Of mikið gert úr lokun bankaútibúa?
„Miklu miklu alvarlegra brot en sérstakur lætur í veðri vaka“
Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn
Sakborningur í Straumsvíkurmálinu í skýjunum eftir dóminn
Taílendingar sólgnir í pylsur
