Björgvin sagði á fundinum í morgun að hann gerði ráð fyrir að núverandi starfsmenn á Sogni gætu fengið vinnu í nýja fangelsinu.
Breyta á réttargeðdeildinni að Sogni í opið fangelsi. Þetta sagði Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar á opnum fundi Samfylkingarinnar í Árborg í morgun.
Ákvörðun hefur verið tekin um að flytja réttargeðdeildina inn á geðdeild Landspítalans á Kleppi frá og með 1. mars næstkomandi. Hingað til hefur hinsvegar ekki legið fyrir hvað yrði um húsnæðið á Sogni. Það er fréttavefurinn DFS.is sem greinir frá þessu.
Björgvin upplýsti að nýja opna fangelsið á Sogni yrði á vegum fangelsisins Litla Hrauns líkt og annað opið fangelsi sem er á Bitru í Flóahreppi. Björgvin sagði á fundinum að núverandi vaktmenn og starfsmenn Sogns gætu væntanlega fengið vinnu í nýja fangelsinu. Þá sagði hann einnig að starfsmenn Litla Hrauns væru mjög jákvæðir fyrir breytingunum.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Of mikið gert úr lokun bankaútibúa?
„Miklu miklu alvarlegra brot en sérstakur lætur í veðri vaka“
Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn
Sakborningur í Straumsvíkurmálinu í skýjunum eftir dóminn
Taílendingar sólgnir í pylsur
