Björn Leifsson lætur ekki deigan síga og opnar nýja líkamsræktarstöð þrátt fyrir hörð átök fyrir dómstólum.
Þrátt fyrir deilur fyrir dómstólum hefur Björn Leifsson ákveðið að opna enn eina líkamsræktarstöðina undir merkjum World Class. Líkamsræktarstöðin verður opnuð á sama stað og Heilsuakademían var áður í Egilshöllinni í Grafarvogi. Líkamsræktarstöðin er opnuð í skugga ásakana um gjafagjörning Björns þegar hann seldi líkamsræktarveldið út úr eignarhaldsfélagi sínu sem var gríðarlega skuldsett inn í nýtt óskuldsett félag.
Líkamsræktarstöðvar World Class verða eftir opnun nýju stöðvarinnar tíu talsins. Óhætt er að segja að um sé að ræða stærsta heilsuræktarveldi á Íslandi. Stöðvarnar og tækin sem í þeim eru voru seld út úr félaginu ÞS69, sem áður hét Þrek ehf., fyrir 25 milljónir króna. Fyrirtækið fór í gjaldþrot árið 2009 og nema kröfur í þrotabúið 2,2 milljörðum króna.
Meira »


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Of mikið gert úr lokun bankaútibúa?
„Miklu miklu alvarlegra brot en sérstakur lætur í veðri vaka“
Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn
Sakborningur í Straumsvíkurmálinu í skýjunum eftir dóminn
Taílendingar sólgnir í pylsur
