ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.7° 10m/s S

Nýr stjórnmálaflokkur stofnaður

Tveir formenn hjá Bjartri framtíð
19:11 › 4. febrúar 2012
Af kynningu á flokknum í Norræna húsinu. Heiða Kristín Helgadóttir og Guðmundur Steingrímsson.

Af kynningu á flokknum í Norræna húsinu. Heiða Kristín Helgadóttir og Guðmundur Steingrímsson.

40 manna stjórn var kosin á stofnfundi stjórnmálaflokksins Bjartrar framtíðar í dag á Kex Hostel. Tveir formenn voru kosnir, Heiða Kristín Helgadóttir sem veitir 40 manna stjórninni formennsku en Guðmundur Steingrímsson var kosinn formaður og jafnframt talsmaður flokksins.

Guðmundur sagði í viðtali við RÚV að flokkurinn væri frjálslyndur, alþjóðlega sinnaður og grænn lýðræðisflokkur. Flokkurinn sé Evrópusinnaður þó að í honum sé fólk með misjafnar skoðanir í Evrópumálum.

Heiða Kristín segir í viðtali við fréttavakt DV að framundan standi til að skrá málefnastefnu flokksins: „Við vorum að stofna flokkinn formlega, kjósa í stjórn og í helstu embætti. Núna framundan munum við setjast niður og koma málefnastefnunni í gang í meiri smáatriðum. Við höfum sett út breiðar línur sem okkur finnst vera grundvallaratriði fyrir fólk að vera sammála um. Svo höfum við ekki ennþá hafið almennilega málefnastarfið niður í smáatriðin enda finnst okkur það vera eitthvað sem á að koma úr starfinu sjálfu en ekki skipunum frá formönnum eða eitthvað álíka.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?