Magnús Geir Eyjólfsson stjórnmálafræðingur hefur verið ráðinn ritstjóri Eyjunnar. Hann færist á milli vefmiðla í eigu Björns Inga Hrafnssonar, útgefanda Eyjunnar og Pressunnar, en Magnús Geir starfaði áður sem blaðamaður á Pressunni. Magnús Geir tekur við af Karli Th. Birgissyni sem lét af störfum sem ritstjóri nýverið.
„Þetta er virkilega spennandi verkefni, enda hefur Eyjan verið einn frjóasti vettvangur íslenskrar þjóðmálaumræðu undanfarin ár,“ segir Magnús Geir í samtali við Eyjuna.
Magnús Geir er fæddur 18. nóvember, 1980, og útskrifaðist hann frá Fjölbrautaskóla Vesturlands. Hann lauk svo BA prófi í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands árið 2004 og hlaut MA gráðu í alþjóðasamskiptum frá Waseda háskóla í Tókýó árið 2006. Hann hefur meðal annars starfað á Morgunblaðinu, Blaðinu og Stöð 2.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Of mikið gert úr lokun bankaútibúa?
„Miklu miklu alvarlegra brot en sérstakur lætur í veðri vaka“
Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn
Sakborningur í Straumsvíkurmálinu í skýjunum eftir dóminn
Taílendingar sólgnir í pylsur
