ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.7° 10m/s S

Nóg að gera hjá lögreglunni

Fjöldi útkalla vegna hávaða og pústra á milli manna
Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is
08:17 › 4. febrúar 2012
Mynd tengist frétt ekki beint.

Mynd tengist frétt ekki beint. Mynd Eyþór Árnason

Átta einstaklingar gistu fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Talsvert var um útköll vegna hávaða og pústra á milli manna. Auk þess voru þrír teknir grunaðir um ölvunarakstur og þrír teknir grunaðir um akstur undir áhrifum ávana og fíkniefna.Einn þessara ökumanna reyndist ekki vera með ökuréttindi.

Í dagbók lögreglunnar kemur einnig fram að einn maður hafi verið handtekinn eftir slagsmál á skemmtistaðnum Spot í Kópavogi og að tilkynnt hafi verið um innbrot í bifreið við Hofgarða. Enn er þó ekki ljóst hvort einhverju hafi verið stolið úr bifreiðinni. Þá var einnig tilkynnt um innbrot í íbúð í austurborginni.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?