Páll Winkel fangelsismálastjóri segir verið sé að leita leiða til að lækka kostnað við rekstur fangelsisins á Bitru. Mynd Heiða Helgadóttir
Engin ný störf skapast verði af hugmyndum um að opna nýtt opið fangelsi á Sogni. Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði frá fyrirhuguðum flutningi fangelsisins að Bitru yfir á Sogn á fundi í morgun. Páll Winkel fangelsismálastjóri segir í samtali við Mbl.is að verið sé að skoða flutning á starfseminni sem nú er á Bitru yfir á Sogn í óbreyttri mynd og að engin ný störf myndu skapast við það.
„Fangelsismálastofnun er að greiða nokkuð háa leigu fyrir húsnæðið að Bitru og okkur ber auðvitað að leita allra leiða til að lækka kostnað,“ segir Páll um málið. Hann fór ásamt Margréti Frímannsdóttur, fangelsisstjóra á Litla Hrauni, á Sogn á dögunum til að skoða aðstæður. Verði staðurinn gerður að fangelsi verður það í umsjá Litla Hrauns.
Í morgun sagði Björgvin að núverandi vaktmenn og starfsmenn Sogns gætu væntanlega fengið vinnu í nýja fangelsinu. Það virðist ekki vera rétt þar sem ekki verður fjölgað í starfsliðinu á Sogni við lokun Bitru.
Sjá einnig:
Sogn verður að opnu fangelsi



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Of mikið gert úr lokun bankaútibúa?
„Miklu miklu alvarlegra brot en sérstakur lætur í veðri vaka“
Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn
Sakborningur í Straumsvíkurmálinu í skýjunum eftir dóminn
Taílendingar sólgnir í pylsur
