Andri Árnason, verjandi Geirs, segir rannsóknarskýrsluna fjalla um fall bankanna en ekki ráðherraábyrgð Geirs. DV ehf / Sigtryggur Ari
Sönnunarfærslu ákæruvaldsins í landsdómsmáli gegn Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, er áfátt í veigamiklum atriðum að mati Andra Árnasonar, verjanda Geirs. Þetta kemur fram í greinargerð hans sem er hluti af vörn Geirs fyrir landsdómi. Þá segir að engin rök standi til að slaka á þeirri sönnunarkröfu sem vanalega er gerð til ákæruvaldsins í málum fyrir landsdómi.
Að sanna hættuna
Andri segir að það sé ákæruvaldsins að sýna fram á, svo hafið sé yfir skynsamlegan vafa, að allt það sem Geir er sakaður um í því sem eftir stendur af fyrstu grein ákærunnar sé raunar brot á lögum um ráðherraábyrgð. Með því virðist verjandi eiga við að saksóknari verði að geta sannað, svo ekki sé vafi á, að brotin sem Geir er sagður sekur um standist refsiskilyrði þeirrar lagagreina sem hann er ákærður fyrir að brjóta. Þannig er farið fram á sönnun þess að Geir hafi vanrækt tiltekna athöfn sem sannarlega gat afstýrt hættunni.
Nánar verður fjallað um vörn Geirs H. Haarde fyrir landsdómi á næstu dögum. DV hefur undir höndum hluta af þeim gögnum sem vörn Geirs hefur lagt fram en þau telja mörg þúsund blaðsíður. Í skrá yfir framlögð skjöl verjanda Geirs má finna allt frá ríkisreikningum ársins 2007, Rit Seðlabanka Íslands um fjármálastöðuleika til frétta í erlendum tímaritum.
Meira »


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Of mikið gert úr lokun bankaútibúa?
„Miklu miklu alvarlegra brot en sérstakur lætur í veðri vaka“
Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn
Sakborningur í Straumsvíkurmálinu í skýjunum eftir dóminn
Taílendingar sólgnir í pylsur
