Magnús Ármann var umsvifamikill fjárfestir á árunum fyrir hrun. Afskrifa þarf 3,3 milljarða rúma af eignalausu félagi hans.
Engar eignir fundust í þrotabúi fjárfestingarfélags Magnúsar Ármann, Sólmon ehf., sem tekið var til gjaldþrotaskipta með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur í október síðastliðnum.
Kröfur í búið námu rúmlega 3,3 milljörðum króna en skiptastjóri þrotabús Sólmon lauk skiptum í lok síðasta mánaðar. Hið eignalausa félag virðist hafa verið stofnað í þeim tilgangi að eiga viðskipti með hlutabréf í FL Group en Magnús var sem kunnugt er einn af helstu viðskiptafélögum Hannesar Smárasonar á árunum fyrir hrun.
Í síðasta ársreikningi félagsins fyrir árið 2009 kom fram að Magnús sjálfur bjóst við að gjaldþroti ef samningaviðræður við lánadrottna um skuldir bæru ekki árangur. Í ársreikningi Sólmon kemur fram að félagið hafi fjárfest mikið í framvirkum samningum með hlutabréf en tap félagsins vegna slíkra samninga á árunum 2007 til 2009 nam tveimur milljörðum króna. Framvirkir samningar ganga út á að menn veðji um að gengi ákveðinna bréfa hækki á ákveðnu tímabili.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Afskrifa 650 milljónir hjá Eggerti
Sendiráðsmilljónir feðganna áfram í frosti
Fasteignafélag IKEA í erfiðleikum
Seldi í Kaupþingi fyrir 4,6 milljarða
Amazon í vanda: Sagt hafa svikið undan skatti
