ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.7° 10m/s S

Stunginn í síðuna eftir rifrildi í Kópavogi

Hlaut djúpt stungusár, skurði og gekkst undir aðgerð
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
08:36 › 3. febrúar 2012
Lögreglumenn að störfum. Karlmaður var stunginn í síðuna í nótt eftir illdeilur í heimahúsi.

Lögreglumenn að störfum. Karlmaður var stunginn í síðuna í nótt eftir illdeilur í heimahúsi. Mynd: DV/ tengist frétt ekki beint

Karlmaður var stunginn með hníf í síðuna eftir deilur í heimahúsi í Kópavogi laust fyrir klukkan fjögur í nótt. Lögreglan var kölluð á vettvang og var tvítugur karlmaður handtekinn. Kona á svipuðum aldri var handtekinn einnig en maðurinn sem varð fyrir hnífstunguárásinni var fluttur með hraði á sjúkrahús. Reyndist hann með skurði víðar um líkamann til viðbótar við stungusárið.

Samkvæmt upplýsingum DV gekkst fórnarlambið, sem mun vera maður á fertugsaldri, undir aðgerð á Landspítalnum vegna áverkanna. Stungan var djúp og hættuleg.

Mjög erilsamt var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt en 40 mál voru bókuð frá miðnætti til klukkan sex í morgun.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?