Aðeins tæpt prósent af heildarkröfum komu til úthlutunar í gjaldþrota félagi í eigu Stefáns H. Hilmarssonar, fyrrverandi fjármálastjóra Baugs og núverandi fjármálastjóra 365. Skiptum á búinu er nú lokið. Alls var kröfum upp á tæplega 425 milljónir króna lýst í félagið AB Stoð ehf. sem úrskurðað var gjaldþrota í lok september síðastliðinn.
Samkvæmt upplýsingum frá skiptastjóra í þrotabúinu komu aðeins um 3,7 milljónir króna til úthlutunar úr AB Stoðum sem stofnað var árið 2005. Félagið fjárfesti meðal annars í hlutabréfum í norska verktakafyrirtækjunum Faktor Eiendommen, danska fasteignaþróunarfélaginu TK Development og íslenska knattspyrnufélaginu Fram.
Samkvæmt fyrri umfjöllun DV um AB Stoð síðastliðið haust voru bréf í þessum félögum einu hlutabréf AB Stoðar í árslok 2008. Fjárfesting Stefáns í TK Development var gerð á svipuðum tíma og Baugur Group keypti hlutabréf í fyrirtækinu sem samkvæmt ársskýrslu Baugs fyrir 2007 varð félagið stærsti hluthafinn í danska félaginu á árinu 2006.
Stefán var persónulega úrskurðaður gjaldþrota sumarið 2010.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Afskrifa 650 milljónir hjá Eggerti
Sendiráðsmilljónir feðganna áfram í frosti
Fasteignafélag IKEA í erfiðleikum
Seldi í Kaupþingi fyrir 4,6 milljarða
Amazon í vanda: Sagt hafa svikið undan skatti
