ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.7° 10m/s S

„Mínar hugsjónir liggja annarsstaðar“

Dominique segir sig úr Félagi kvenna í atvinnurekstri í kjölfar verðlaunafhendingar
12:52 › 3. febrúar 2012
Dominique Plédel, eigandi Vínskólans, hefur ákveðið að

Dominique Plédel, eigandi Vínskólans, hefur ákveðið að Mynd: DV

„Ég á ekki samleið með þeim. Kannski aðrar eigi það en mínar hugsjónir liggja annarsstaðar,“ segir Dominique Plédel eigandi Vínskólans sem hefur ákveðið að segja sig úr Félagi kvenna í atvinnurekstri.

Félagið (FKA) hefur sætt gagnrýni undanfarna daga síðan ákveðið var að veita Já.is verðlaunin Gæfusporið 2012. Meðal þeirra sem stigið hafa fram og gagnrýnt félagið fyrir verðlaunin er Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri, sem benti á að Já hefði á undanförnum árum lokað þremur hreinræktuðum kvennavinnustöðum og sagt upp þrjátíu konum í hagræðingarskyni.

FKA hefur svarað þessari gagnrýni og varið ákvörðun sína meðal annars með því að benda á að líkt og flest önnur fyrirtæki landsins hafi Já þurft að grípa til erfiðara aðgerða. Í bréfi til félagskvenna sem DV hefur undir höndum segir „Ákvörðun Já um að leggja niður starfsstöð sína á Akureyri var bláköld rekstrarleg ákvörðun og hafði ekkert með kyn starfsfólks þar að gera.“

DV hefur heimildir fyrir því að fleiri konur hafi í kjölfar verðlaunaafhendingarinnar sagt sig úr félaginu og íhugi nú hvort þær eigi samleið með FKA. Dominique er hins vegar búin að gera upp sinn hug.

Hún segist hafa hrifist af markmiðum FKA. Hún sé sannfærð um að konur geti rekið fyrirtæki á öðru forsendum er karlar þar sem í fyrirrúmi sé annað en græðgi og peningar.

„Þegar þetta félag fer að verðlauna fyrirtæki eingöngu út af því að þar eru konur sem sitja við stýrið og það skilar flottum tölum án þess að litið sé til siðferðis eða hugmyndafræði samsvara ég mig ekki með því. Fyrirtæki hlýtur Gæfuspor sem velur vafasamar auglýsingaleiðir og í rauninni hagar sér eins karlar,“ segir Dominique í samtali við DV.

DV hefur reynt án árangurs að ná í Huldu Bjarnadóttur, framkvæmdastjóra FKA, vegna úrsagna úr félaginu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?