ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.7° 10m/s S

Ekkert eðalvín í dótakassa Kaupþingsmanna

Búslóðir og bilaður bíll í geymslunni á Smiðshöfða
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
09:27 › 3. febrúar 2012
Steingrímur P. Kárason á leið úr yfirheyrslum hjá sérstökum saksóknara árið 2010.

Steingrímur P. Kárason á leið úr yfirheyrslum hjá sérstökum saksóknara árið 2010. Mynd: DV/Sigtryggur Ari

Slitastjórn Kaupþings heimsótti loks geymsluhúsnæði Kaupþingsstjórnendanna fyrrverandi Ingólfs Helgasonar og Steingríms P. Kárasonar á dögunum. Var talið að í geymslunni leyndust mikil verðmæti, meðal annars bílar, vélsleðar og eðalvín að verðmæti hundruð milljóna.

Í Fréttablaðinu í dag segir hins vegar frá því að heimsóknin í geymsluna hafi verið hin mesta fýluferð fyrir slitastjórnina sem barist hafði mánuðum saman fyrir því hjá sýslumanni og dómstólum að fá aðgang að húsnæðinu á Smiðshöfða.

Fréttablaðið segir að þarna hafi einungis verið að finna búslóðir á vegum Kaupþingsmannanna fyrrverandi og annarra sem ekki eru taldar mjög verðmætar. Þá fannst bilaður bíll, árgerð 2004 sem þegar hafði verið kyrrsettur og ekkert bólaði á hinum fokdýru flöskum af eðalvíni sem þar áttu að vega í tugatali.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?