ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.7° 10m/s S

Móðir Eiríks Inga vildi að hann hætti við örlagaferðina

„Ég vildi ekki að hann færi“
Viktoría Hermannsdóttir viktoria@dv.is
07:00 › 3. febrúar 2012
Fjölskyldumaður . Eiríki er lýst sem miklum fjölskyldumanni. „Uppskrift að góðum pabba,“ segir móðir hans meðal annars við DV.

Fjölskyldumaður . Eiríki er lýst sem miklum fjölskyldumanni. „Uppskrift að góðum pabba,“ segir móðir hans meðal annars við DV.

„Hann er mikill baráttumaður. Hann er þrjóskur og þver og Eiríkur gefst sko ekki upp. Ef hann ætlar sér eitthvað þá er alveg sama hversu margar beygjur og sveigjur verða á leið hans. Hann kemst það á þrjóskunni,“ segir Sigríður Hallgrímsdóttir, móðir Eiríks Inga Jóhannssonar sem komst lífs af þegar Hallgrímur SI sökk í síðustu viku. Eiríkur var sá eini sem komst lífs af úr slysinu en þrír skipsfélagar hans drukknuðu. Móðir hans segist hafa haft vonda tilfinningu fyrir ferðinni.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nærmynd af þessum mikla baráttumanni í helgarblaði DV. Óhætt er að segja að stór hluti þjóðarinnar hafi staðið á öndinni þegar hann lýsti reynslu sinni á einlægan hátt í Kastljósi á miðvikudagskvöld. Móðir Eiríks, Sigríður, segir að hún hafi reynt að fá hann til að hætta við að fara í ferðina.

„Ég vildi ekki að hann færi í þessa sjóferð, bara alls ekki. Ég var með einhverja ónotatilfinningu fyrir ferðinni eitthvað sem ég gat ekki útskýrt. Bara eitthvað sem ég fann innra með mér og ég reyndi að fá hann ofan af því að fara.“

Í helgarblaði DV er ítarlega fjallað um málið. Áskrifendur geta lesið viðtölin við móður hans, bróður og vini hér að neðan með því að smella á „Meira“.

Meira »

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?