Umboðið sem Bjarni fékk til veðsetningar var hins búið til nokkrum dögum síðar auk þess sem veðin fyrir láninu voru ekki keypt fyrr en eftir 8. febrúar.
Umboðin þrjú sem Bjarni Benediktsson, núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, fékk til að veðsetja hlutabréfin í eignarhaldsfélaginu Vafningi hjá Glitni í febrúar 2008 voru útbúin þremur dögum eftir þá dagsetningu sem fram kemur á þeim. Skjölin voru dagsett 8. febrúar 2008 og undirrituð af fyrirsvarsmönnum félaganna Hrómundar, Hafsilfurs og BNT, móðurfélags olíufélagsins N1. Félögin þrjú voru í eigu skyldmenna Bjarna að stærstu leyti.
Í stofnupplýsingum umboðanna, PDF-skjölum sem DV hefur undir höndum, kemur hins vegar fram að umboðin hafi verið búin til 11. febrúar. Unnið var í umboðunum þremur í síðasta skipti á tíunda tímanum þann dag. Af gögnum málsins að dæma verður því ekki annað séð en um hafi verið að ræða fölsun á umræddum skjölum.
DV sendi Bjarna spurningar um málið í byrjun vikunnar. Bjarni svaraði hins vegar ekki spurningum blaðsins þrátt fyrir að þær hefðu verið ítrekaðar þrisvar sinnum.
DV fékk þau svör í gegnum þriðja aðila að Bjarni teldi sig vera búinn að svara þessum spurningum. Það stenst þó ekki þar sem spurningarnar byggja á nýjum upplýsingum úr ákæru sérstaks saksóknara í Vafningsmálinu sem gefin var út í desember. Bjarni hefur hins vegar ekki rætt við fjölmiðla um þessar nýju upplýsingar frá því ákæran var gefin út.
Nánar má lesa um málið í helgarblaði DV. Áskrifendur geta lesið alla greinina hér að neðan með því að smella á „Meira“.
Meira »


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Of mikið gert úr lokun bankaútibúa?
„Miklu miklu alvarlegra brot en sérstakur lætur í veðri vaka“
Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn
Sakborningur í Straumsvíkurmálinu í skýjunum eftir dóminn
Taílendingar sólgnir í pylsur
