Engar greiðslur fengust upp í lýstar kröfur í þrotabú eignalauss félags Ingvars Vilhjálmssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra markaðsviðskipta Kaupþings. Kröfur í félagið k08 ehf. námu tæplega 8 milljörðum króna.
Félagið hét áður Ingvar Vilhjálmsson ehf. en nafninu var breytt í k08 ehf. í október 2010, að líkum til vera ekki með jafn beinum hætti tengdur við félagið. Ingvar færði meðal annars 3 milljarða króna hlut sinn í Kaupþingi yfir í félagið vikuna fyrir fall bankans til að komast undan persónulegri ábyrgð á nokkrum kúlulánum til hlutabréfakaupa í bankanum. Skuldirnar í félaginu voru að mestu leyti vegna kúlulána frá bankanum en Ingvar var einn þeirra starfsmanna Kaupþings sem hvað mest fékk lánað frá bankanum. Aðeins forstjórinn Hreiðar Már Sigurðsson og stjórnarformaðurinn Sigurður Einarsson fengu hærri upphæðir.
Ingvar var í nóvember í fyrra dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða þrotabúi bankans rúmlega 2,6 milljarða króna vegna lánanna og rift var gjörningum Kaupþings að fella niður persónulega ábyrgð Ingvars á skuldunum og færa þær inn í einkahlutafélagið.
Félagið k08 ehf. var tekið til gjaldþrotaskipta í júlí í fyrra en skiptalok voru þann 26. janúar síðastliðinn. Þar sem fram kemur í tilkynningu skiptastjóra að engar eignir hafi fundist í búinu og engar greiðslur fengist upp í lýstar kröfur sem námu nákvæmlega 7.790.865.667 krónum. Þessar skuldir eru því afskrifaðar.
Sjá einnig:
Ingvar þarf að endurgreiða Kaupþingi kúlulánin



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Afskrifa 650 milljónir hjá Eggerti
Sendiráðsmilljónir feðganna áfram í frosti
Fasteignafélag IKEA í erfiðleikum
Seldi í Kaupþingi fyrir 4,6 milljarða
Amazon í vanda: Sagt hafa svikið undan skatti
