Aðeins tveir félagsráðgjafar starfa innan Fangelsismálastofnunar ríkisins og sinna þeir alls um 380 einstaklingum. Fangar á Íslandi eru um 170 og eru 210 einstaklingar á skilorði. Þar af eru um 100 með sérskilyrði og háðir umsjón og eftirliti. Almennt er talið að eðlilegur málafjöldi félagsráðgjafa sé um 50 einstaklingar. Í þungum málaflokkum eins og barnavernd, fangelsismálum og geðsviði er viðunandi málafjöldi talin vera 35 einstaklingar þannig að hægt sé að hafa yfirsýn yfir málin og sinna stuðningi og meðferð.
Nauðsynlegt að fjölga starfsmönnum
Íris Eik Ólafsdóttir, félagsráðgjafi hjá Fangelsismálastofnun, segir að erfitt sé að sinna öllum þeim einstaklingum eins vel og æskilegt væri og því sé nauðsynlegt að forgangsraða málum. „Inni í þessum málafjölda eru ekki teknir með þeir einstaklingar sem ekki eru komnir til afplánunar og ekki heldur sú þjónusta sem veitt er til aðstandenda,“ segir Íris og bætir við að sú þjónusta sé talsverð. „Alls eru 100 einstaklingar undir sérstöku eftirliti og í þeim málum væri eðlilegt að félagsráðgjafi væri með um 35 einstaklinga á sinni könnu til þess að hafa yfirsýn ásamt því að geta veitt þann stuðning og eftirlit sem ætlast er til.“
Nánar er fjallað um málið í DV í dag. Áskrifendur að DV.is geta lesið alla fréttina ef þeir ýta á meira


Hemmi Gunn fallinn frá