ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.7° 10m/s S

Þjóðverjar hætti að gelda kynferðisglæpamenn

Segja ekkert sýna fram á að það hamli þeim í að brjóta af sér
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:26 › 23. febrúar 2012

Þýskaland á að hætta að bjóða kynferðisafbrotamönnum upp á geldingar. Þetta er niðurstaða Mannréttindanefndar Evrópuráðs, sem berst gegn pyntingum.

Samkvæmt þýskum lögum geta stendur það kynferðisafbrotamönnum til boða að láta gelda sig, en aðeins með þeirra samþykki. Aðgerðirnar eru sjaldgæfar í Þýskalandi en um fimm slíkar hafa verið framkvæmdar á ári hverju síðastliðinn áratug, að því er fram kemur á fréttavef Reuters.

Nefndin heldur því þó fram að engar sannanir séu fyrir því að þessar aðgerðir komi í veg fyrir að kynferðisafbrotamenn fremji kynferðisglæpi aftur.

Í svari til nefndarinnar sögðust þýsk stjórnvöld vera að endurskoða þessa aðferð en töldu þó læknisfræðileg rök fyrir því að halda henni áfram .

Samkvæmt þýskum lögum má gelda kynferðisglæpamann ef hann biður um slíka aðgerð. Hann þarf einnig að vera eldri en 25 ára og að hafa samþykki frá sérfræðingum.

Þýskaland og Tékkland eru einu Evrópuríkin sem bjóða upp á slík úrræði fyrir kynferðisglæpamenn.

Í nokkrum ríkjum Bandaríkjanna og í Póllandi eru kynferðisglæpamenn skyldaðir til að undirgangast lyfjameðferð til að bæla framleiðslu hormóna.

Önnur lönd leyfa kynferðisafbrotamönnum að velja hvort þeir fari í slíka lyfjameðferð.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?