ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.7° 10m/s S

Þráinn Bertelsson: Ætla að hafa æruna af Jóni Baldvini

„Út af gömlum fjölskylduharmleik og dómgreindarbresti“
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:01 › 23. febrúar 2012

Þráinn Bertelsson, þingmaður Vinstri grænna, skrifar á Facebook-síðu sína að Nýtt Líf ætli sér að hafa æruna af Jóni Baldvini Hannibalssyni, fyrrverandi ráðherra og sendiherra, í gróðaskyni.

„Út af gömlum fjölskylduharmleik og dómgreindarbresti - sem á engan hátt tengist lögbroti af neinu tagi, og allrasíst "barnaníði" eins og svo svo smekklega er látið liggja að. Það er sorglegt og langt handan mennsku, smekks og dómgreindar þegar miskunnarlaust fólk reynir að gera sér gamalt heimilisböl fólks að féþúfu,“ skrifar Þráinn á Facebook og ráðleggur fólki frá því að kaupa blaðið.

„Það er rétt að taka það fram að ég tengist Jóni Baldvini ekki á nokkurn hátt og var ósammála honum um flesta hluti meðan hann gegndi ráðherraembætti. Það breytir ekki því að ég ætla ekki að standa hjá og horfa á hann niðurlægðan í gróðaskyni - jafnvel ekki af hræsnisfullum öfgafemínistum ellegar athyglissjúku fólki,“ segir Þráinn í athugasemd við Facebook-skrifin.

Í Nýju Lífi í dag eru birt bréfi sem Jón Baldvin sendi systurdóttur eiginkonu sinnar, Guðrúnu Harðardóttur, þar sem er meðal annars að finna grófar kynlífslýsingar með nafngreindum einstaklingum og einnig samskipti Jóns Baldvins við vændiskonur.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?