ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.7° 10m/s S

Snorri í Betel kærður til lögreglu

Sálfræðingur á Akureyri kærir Snorra - Vill vita hvar mörk tjáningarfrelsis liggja
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
08:54 › 23. febrúar 2012

Snorri Óskarsson, jafnan kenndur við Betel, hefur verið kærður til lögreglu vegna ummæla á bloggsíðu sinni. Það er Pétur Maack, sálfræðingur á Akureyri, sem hefur kært Snorra, sem kennir við Brekkuskóla á Akureyri, en það er Akureyri Vikublað sem greini frá málinu.

Í blaðinu er grein frá því að óvissa virðist fyrir hendi hvar mörk tjáningarfrelsis liggi og þess vegna kæri Pétur Maack hann.
Skólayfirvöld sendur Snorra í Betel í sex mánaða leyfi frá störfum vegna ummæla hans á bloggsíðu sinni.
Mikið hefur verið rætt um tjáningarfrelsið vegna þessar ummæla hans en í blaðinu er greint frá því að skólayfirvöld hafi verið sökuð um gerræði, skoðanakúgun og jafnvel brot á stjórnarskrárvörðu tjáningarfrelsi Snorra.

Pétur Maack greinir frá því að honum sé óheimilt að tjá sig um málefni sjúklinga sinna og sambærilegar skorður við tjáningarfrelsið eru fjölmargar. Skólayfirvöld á Akureyri hafa verið sökuð um gerræði, skoðanakúgun og jafnvel brot á stjórnarskrárvörðu tjáningarfrelsi Snorra. Tjáningarfrelsið sé ein af grundvallarreglum stjórnarskrárinnar. En tjáningarfrelsið sé ekki óskert.

„Að sama skapi má ætla að sá sem tekið hefur að sér kennslu í grunnskóla hafi framselt rétt sinn til að tjá skoðanir sem ganga jafn augljóslega gegn hagsmunum hluta nemendahópsins og bloggskrif Snorra gera,“ segir Pétur við Akureyri Vikublað.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?