ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.7° 10m/s S

Rán framið í Gullnámunni á Akureyri

Maðurinn gekk inn og hrifsaði með sér peninga
13:00 › 23. febrúar 2012
Rán framið á Akureyri í hádeginu í dag.

Rán framið á Akureyri í hádeginu í dag.

Um tólfleytið í dag var lögreglunni á Akureyri tilkynnt um rán í Fjölumboðinu við Geislagötu á Akureyri. Samkvæmt upplýsingum frá rannsóknardeild lögreglunnar í bænum gekk maður inn á staðinn, hrifsaði með sér peninga og forðaði sér af vettvangi.

Gullnáman og Happdrætti Háskólans eru meðal annars til húsa að Geislagötu 12 þar sem ránið var framið.

Litlar upplýsingar er að fá um málið að svo stöddu og er stendur rannsókn þess yfir. Ekki fengust upplýsingar um hvort maðurinn hafi verið vopnaður en ræninginn er enn ófundinn. Starfsmenn fyrirtækisins vildu ekki tjá sig um málið þegar DV hafði samband nú fyrir stundu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?